Beint í efni

Hags­muna­gæsla rædd á fjölmennum fundi á Akureyri

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, tók þátt í Súpufundi atvinnulífsins á Akureyri.

Hagsmunagæsla rædd á fjölmennum fundi á Akureyri

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, var meðal frummælenda á fjölmennum Súpufundi atvinnulífsins sem fór fram á Múlabergi á Hótel KEA í gær. Akureyrarbær og SSNE stóðu fyrir fundinum þar sem voru mættir stjórnendur um fimmtíu fyrirtækja og stofnana til að ræða framtíð og hagsmunagæslu atvinnulífsins á svæðinu.

Í máli Sigurðar kom meðal annars fram að hagsmunagæsla væri samstarf. Hann sagði að á svæðinu væru fjölmörg fyrirtæki og félagsmenn sem láti til sín taka í hagsmunagæslunni og það væri styrkur Samtaka iðnaðarins hversu öflug grasrótin væri. „Þeim mun fleiri sem eru með, því fleiri sem taka virkan þátt í starfinu, því öflugri verður hagsmunagæslan. Saman erum við sterkari og náum meiri árangri.“

Aðrir frummælendur á fundinum voru Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, og Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA. Á vef Akureyrarbæjar kemur fram að líflegar umræður hafi skapast meðal fundargesta um áskoranir og tækifæri í atvinnulífinu.