Beint í efni

Fundur um stöðu íbúða­upp­bygg­ingar á Egilsstöðum

Fundurinn verður 7. október kl. 12 á Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum.

Opið fyrir umsóknir um styrki úr Aski

Tryggð byggð, HMS og Samtök iðnaðarins í samstarfi við landshlutasamtök sveitarfélaganna boða til samtals um stöðu íbúðauppbyggingar um landið 7. október kl. 12 á Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum.

Boðið verður upp á súpu og brauð.

Fundinum verður einnig streymt frá facebook-síðu HMS.

Dagskrá

  • Atvinnulíf og landshlutasamtök - Dagmar Ýr Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar
  • Staða íbúðauppbyggingar og framtíðarhorfur - Jón Örn Gunnarsson og Róbert Smári Gunnarsson, sérfræðingur á húsnæðissviði HMS
  • Byggjum í takt við þarfir - Friðrik Á. Ólafsson, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI
Tryggd-byggd-fundir-haustid-2024_Egilsstadir