Beint í efni

Góð mæting á fund SI um útboðsmál í mann­virkja­iðn­aði

SI stóðu fyrir fræðslufundi fyrir félagsmenn í mannvirkjaiðnaði í Húsi atvinnulífsins.

Góð mæting á fund SI um útboðsmál í mannvirkjaiðnaði

Góð mæting var á fræðslufund SI fyrir félagsmenn í mannvirkjaiðnaði um útboðsmál sem fór fram í gær. Fundurinn fór fram bæði í Húsi atvinnulífsins og í beinu streymi.

Á fundinum fór Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, yfir samspil útboðsréttar og samkeppnisréttar og hlutverk SI. Þá fór Dagmar Sigurðardóttir, lögmaður og eigandi Lagastoðar og sérfræðingur í opinberum innkaupum, yfir algeng mistök og hvað bæri að varast í útboðsferlinu.