Beint í efni

Gróska í íslenskum líf- og heil­brigð­is­tækni­iðn­aði

Samtök iðnaðarins og Íslandsstofa stóðu fyrir viðburði um stöðu og þróun íslenska líf- og heilbrigðistækniiðnaðarins.

Gróska í íslenskum líf- og heilbrigðistækniiðnaði

Í tilefni Nýsköpunarvikunnar stóðu Samtök iðnaðarins og Íslandsstofa fyrir viðburði um stöðu og þróun íslenska líf- og heilbrigðistækniiðnaðarins í gær í Grósku. Á fundinum kom fram að líf- og heilbrigðistæknigeirinn á Íslandi væri fjölbreyttur, framsækinn og drifinn áfram af nýsköpun og nú væri rétti tíminn til að varpa ljósi á þau tækifæri sem hann býður upp á.

Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, stýrði fundinum. Heilbrigðisráðherra Alma Möller flutti ávarp í byrjun fundarins. Þá kynnti Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch, líf- og heilbrigðisvísindamaður, nýja kortlagningu líf- og heilbrigðistæknigeirann á Íslandi sem byggir á fimm lykilstefum sem móta þróun greinarinnar sem hún vann fyrir Reykjavík Science City. Þessi fimm lykilstef eru nýsköpun, fjárfestingar, hæfni, alþjóðleg samkeppni og vöxtur. Að því loknu var efnt til pallborðsumræðna um tækifæri, áskoranir og næstu skref í atvinnugreininni með þátttöku eftirtaldra: Sesselja Ómarsdóttir forstjóri Genís, Jónína Guðmundsdóttir forstjóri Coripharma, Davíð Björn Þórisson hjá CPO & Founder, Kjartan Þórsson forstjóri Prescriby og Svavar Halldórsson, sölu- og markaðsstjóri Algalíf Iceland. Umræðunum stýrði Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala.

Myndir/Stephanie Zakas