Beint í efni

Hár­snyrti­meist­arar ræða sameiginleg hagsmunamál hár­snyrti­iðn­ar

Stjórnir Félags hársnyrtimeistara á Norðurlandi og Félags hársnyrtimeistara og -sveina í Reykjavík funduðu í Húsi atvinnulífsins fyrir skömmu. Á fundinum var fjallað um stöðu hársnyrtiiðnar og helstu verkefni félaganna. Meðal umræðuefna voru iðnnám, vinnustaðanám, mat á erlendu námi og lögverndun starfsheitisins. Einnig var rætt um leiðir til að bregðast við ólöglegri starfsemi. Hársnyrtiiðn er rótgróin og umfangsmikil iðngrein hér á landi. Á fundinum kom fram mikilvægi þess að gera skýran greinarmun á þjónustu fagfólks með tilskilin réttindi og starfsemi þeirra sem uppfylla ekki faglegar kröfur. Þar komi meðal annars til heilbrigðis- og neytendasjónarmið, meðferð efna og öryggi viðskiptavina. Skoða á leiðir til að gera fagleg réttindi sýnilegri, meðal annars með merkingum og vottun á þeim stöðum sem fagfólk vinnur. 

Á fundinum var einnig farið yfir helstu atriði samkeppnislaga. Sérstaklega var fjallað um hvaða málefni fagfélögum er heimilt að ræða á sameiginlegum fundum og hvar takmarkanir samkeppnislaga liggja.

Á myndinni eru Ívar Eiríkur Sigurharðarson, Heiða Hrönn Hreiðarsdóttir, Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir og Sigríður Valdís Bergvinsdóttir.