Beint í efni

Mikil aðsókn í VMA

Sérfræðingur í mennta- og mannauðsmálum hjá Samtökum iðnaðarins, Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, heimsótti Verkmenntaskólann á Akureyri á dögunum og fundaði með Benedikt Barðasyni, skólameistara VMA, og Ástu Flosadóttur, aðstoðarskólameistara VMA. 

Hulda segir að í heimsókninni hafi komið fram að mikil eftirspurn sé eftir fólki með starfsmenntun og mikil aðsókn sé í iðn- og starfsnám skólans. Stjórnendur og starfsfólk hafi leitað allra leiða til að nýta aðstöðuna sem best og nánast hver einasti fermetri væri þegar fullnýttur. Hún segir að einnig hafi komið fram að húsnæðismálin standi til bóta með fyrirhugaðri viðbyggingu.  

Ásta Flosadóttir, aðstoðarskólameistari VMA, Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir hjá SI, og Benedikt Barðason, skólameistari VMA.