Beint í efni

Heil­brigð­is­tækni sífellt stærri hluti heil­brigð­is­kerf­is­ins

Helix sem er aðildarfyrirtæki SI stóð fyrir fundi um stöðu heilbrigðistækni á Íslandi.

Heilbrigðistækni sífellt stærri hluti heilbrigðiskerfisins

Helix sem er meðal aðildarfyrirtækja SI stóð fyrir fundi um heilbrigðistækni sem er að verða sífellt stærri hluti heilbrigðiskerfisins. Á fundinum sem fór fram í Hannesarholti var fjallað um árangur og framtíð heilbrigðistækni á Íslandi. Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, stýrði fundinum. Jón Magnús Kristjánsson, aðstoðarmaður heilbrigðismálaráðherra, flutti opnunarávarp. Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch, sérfræðingur í vísindum og nýsköpun Fönn Consulting, fjallaði um stöðu, stefnu og stuðning við heilbrigðistækni á Íslandi. Hulda Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Nox Medical á Íslandi og COO Nox Health, sagði frá leiðandi heilbrigðistækni Nox í Bandaríkjunum og Nox Medical tækni sem umbreytir greiningu svefnsjúkdóma til framtíðar. Kjartan Þórsson, stofnandi Prescriby, greindi frá því að það væri ekki nóg að skapa lausnina, koma þurfi nýsköpun í heilbrigðiskerfinu í notkun. Einar Geirsson, forstöðumaður nýsköpunar hjá Helix, fjallaði um tímabókanir í heilbrigðiskerfinu.

Á vef Viðskiptablaðsins er hægt að nálgast fleiri myndir frá viðburðinum.

Myndir/Hulda Margrét


Heilbrigðistækni sífellt stærri hluti heilbrigðiskerfisins - Samtök Iðnaðarins