Beint í efni

Hug­verka­iðn­að­ur stærsta út­flutn­ings­stoð­in í lok áratugar

Hugverkaiðnaður verður stærsta útflutningsstoðin í lok þessa áratugar ef fram heldur sem horfir.

Hugverkaiðnaður
stærsta útflutningsstoðin í lok áratugar

Útflutningstekjur hugverka- og tækniiðnaðar hafa fjórfaldast frá aldamótum og verður greinin orðin stærsta útflutningsstoðin í íslenska hagkerfinu fyrir lok þessa áratugar ef fer fram sem horfir.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri greiningu á íslenskum iðnaði í alþjóðlegu umhverfi sem Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins, hefur gert og kynnt er á Iðnþingi sem fer fram í dag.

Undir hugverkaiðnað falla m.a. fyrirtæki í upplýsingatækni- og fjarskiptaiðnaði, tölvuleikjagerð, kvikmyndagerð, lyfjaframleiðslu, líf- og heilbrigðistækni og ýmsum hátækniiðnaði.

Hlutfall hugverkaiðnaðar af útflutningstekjum var um 4% árið 2000 en er nú 16%. Könnun meðal félagsmanna SI leiðir í ljós að áform um vöxt eru langmest innan hugverka- og tæknitengdra greina. Gera má ráð fyrir að 29% útflutningstekna verði til vegna hugverkatengdrar starfsemi árið 2030 og að greinin verði þá orðin stærst af meginstoðunum fjórum; sjávarútvegi, orkusæknum iðnaði, ferðaþjónustu og hugverkaiðnaði.

Íslenskur iðnaður hefur vaxið verulega undanfarna áratugi og hefur orðið gríðarleg breyting frá árinu 1980 en þá skilaði sjávarútvegur tæplega 60% útflutningstekna landsins. Þrátt fyrir að sjávarútvegur skapi enn mikil verðmæti skýrist lægra hlutfall af vexti hinna stærstu greinanna sem um leið hafa skilað meiri fjölbreytni og viðnámsþrótti í íslensku efnahagslífi. Iðnaður í heild er nú stærsta útflutningsgreinin og skilar um 48% útflutningstekna.

Viðfangsefni Iðnþings í ár er samkeppnishæfni íslensks iðnaðar í alþjóðlegu umhverfi á tímum tæknibyltinga og tollastríða. Viðburðurinn hefst klukkan 14 í Silfurbergi í Hörpu.


mbl.is, 6. mars 2025.

Viðskiptablaðið, 6. mars 2025.