Beint í efni

Iðn­að­ar­lög­in til umræðu á fundi Mál­ara­meist­ara­fé­lags­ins

Á félagsfundi Málarameistarafélagsins var rætt um iðnaðarlögin.

Iðnaðarlögin til umræðu á fundi Málarameistarafélagsins

Málarameistarafélagið stóð fyrir félagsfundi í Húsi atvinnulífsins í morgun þar sem rætt var meðal annars um iðnaðarlögin. Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, og Friðrik Á. Ólafsson, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, héldu erindi.

Að erindunum loknum sköpuðust góðar umræður um iðnaðarlögin, skilgreiningu á leppun og til hvaða aðgerða best sé að grípa til þegar um brot á lögunum er að ræða. Fundargestir voru sammála um mikilvægi þess að félagið stígi fram með góðu fordæmi og fræðslu sem ýti undir aukna fagmennsku og gæði í greininni. Aðalfundur Málarameistarafélagsins fer fram 8. maí og verða þá niðurstöður umræðunnar bornar undir þann fund.