Samtök menntatæknifyrirtækja, IEI, sem eru aðildarsamtök SI voru með kynningarbása á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna sem fór fram fyrir nokkru í Vör, farþegamiðstöð Faxaflóahafna við Skarfabakka. Markmiðið var að kynna íslenskar menntatæknilausnir fyrir sveitarstjórnarfólki og opna samtal um hvernig sveitarfélög og fyrirtæki geta unnið saman að betra skólastarfi.
Á básunum kynntu Meta Geta, Bara tala, Evolytes, Ásgarður skólaráðgjöf, Ásgarðsskóli – skóli í skýjunum og Vegvísa lausnir sínar, meðal annars á sviði læsis, gæðakerfis, stærðfræði, máltækni, íslenskunáms og inngildingar.
Kalla eftir samstarfi við sveitarfélögin
Samtök menntatæknifyrirtækja leggja áherslu á tvö mál, annars vegar samræmt verklag sveitarfélaga við innleiðingu menntatæknilausna og hins vegar aukið fjármagn til námsgagna. Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, viðskiptastjóri Samtaka menntatæknifyrirtækja hjá SI, segir mikilvægt að samræma verklag sveitarfélaga við innleiðingu menntatæknilausna. „Þegar lausn hefur farið í gegnum stranga rýni á persónuvernd í einu sveitarfélagi, og sú úttekt nær jafnvel til allra skóla þess, ætti niðurstaðan að nýtast öðrum sveitarfélögum. Í dag þurfa fyrirtækin oft að fara í gegnum sambærilega úttekt aftur og aftur. Það er dýrt og tímafrekt, bæði fyrir fyrirtækin og sveitarfélögin sjálf. Persónuverndarreglugerðin gildir með sama hætti um allt Evrópska efnahagssvæðið, og því ætti ekki að þurfa að byrja frá grunni í hvert sinn.“ Hún segir að fjármagn til námsgagna hafi rýrnað verulega. Samkvæmt skýrslu starfshóps mennta- og barnamálaráðuneytisins frá 2024 séu Námsgagnasjóður og Þróunarsjóður námsgagna nú aðeins tæplega þriðjungur þess sem þeir hefðu átt að vera. Hún segir að þar komi einnig fram að um 0,4% af rekstrarkostnaði grunnskóla fari í námsgögn, samanborið við 1,5–4% á Norðurlöndunum. Kostnaðurinn lendi því í auknum mæli á sveitarfélögunum.
Hulda Birna segir að Samtök menntatæknifyrirtækja og Samband íslenskra sveitarfélaga hafi átt fulltrúa í starfshópnum sem hafi meðal annars lagt til miðlæga stafræna námsgagnaveitu og aukið fjármagn til námsgagna. „Við eyðum dýrmætum tíma og fjármunum sem annars mætti nýta í lausnir fyrir alla árganga í mörg ár. Ef við innleiðum til dæmis inngildandi lausnir og nýtum gögnin til að taka betri ákvarðanir getur sparnaður skilað sér í málaflokknum á nokkrum árum. Ávinningurinn er ánægðari börn, foreldrar og kennarar og betri námsárangur. Við köllum eftir samtali við Samband íslenskra sveitarfélaga um hvernig íslensk menntatækni getur nýst í skólum þeirra, hvernig fjármunir nýtist betur og skólar fái fyrr aðgang að góðum lausnum og gagnvirkum námsgögnum,“ segir Hulda Birna.






