Landslag, sem er aðili að Samtökum iðnaðarins, hlaut fyrstu verðlaun í alþjóðlegu Rosa Barba Landscape Prize en þau eru ein virtustu verðlaun sem veitt eru í landslagsarkitektúr. Verðlaunin fékk Landslag fyrir hönnunarverkefni sem er tröppustígur upp á Saxhól á Snæfellsnesi en Saxhóll er lítill gígur, 45 m hár, miðja vegu milli Hellna og Rifs. Í frétt Vísis af verðlaununum segir að dómnefndin hafi tekið íslenska verkefnið fram yfir átta önnur, þar á meðal tvö risastór kínversk verkefni og eitt stórt frá Mexíkó. Rosa Barba verðlaunin eru veitt annað hvert ár og er haft eftir landslagsarkitekt hjá Landslagi að þetta sé í fyrsta skipti sem íslenskir landslagsarkitektar fái slíka viðurkenningu. Á vef Vísis er hægt að lesa nánar um Landslag og viðurkenninguna. Starfsfólk Landslags og makar í tröppustígnum á Saxhól.
Íslenskt mannvirki fær alþjóðlega viðurkenningu
Landslag hlaut fyrstu verðlaun í alþjóðlegu Rosa Barba Landscape Prize.

Tengt efni
Heimsókn í ný húsakynni Blikksmiðsins
Fulltrúi SI heimsótti ný húsakynni Blikksmiðsins að Bæjarflöt 2.

Atvinnuleysi í byggingariðnaði langt umfram það sem sést í hefðbundinni árstíðasveiflu
Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Morgunblaðinu um aukið atvinnuleysi í byggingariðnaði.

Blikksmíði í sviðsljósinu á TikTok
