Meirihluti félagsmanna Samtaka iðnaðarins er andvígur aðild Íslands að Evrópusambandinu og hefur andstaðan farið vaxandi. Þegar félagsmenn eru spurðir „hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ertu aðild Íslands að Evrópusambandinu?“ svara 43% mjög andvíg(ur) og 14% frekar andvíg(ur). Þannig eru 57% félagsmanna andvígir aðild, eða meirihluti. Hins vegar svara 10% mjög hlynnt(ur) og 16% frekar hlynnt(ur). Þannig eru samanlagt um 26% hlynnt.
Talsverðar breytingar hafa verið í afstöðu félagsmanna til aðildar að Evrópusambandinu á síðustu árum. Veruleg hækkun hefur verið á hlutfalli þeirra sem eru mjög andvígir aðild. Það hlutfall var 22% árið 2024 en mælist nú 43% líkt og áður sagði. Á sama tíma hefur hlutfall þeirra sem eru fylgjandi lækkað. Þannig var hlutfall þeirra sem voru mjög fylgjandi 17% árið 2024 en mælist nú 10%. Einnig hefur hlutfall þeirra sem eru frekar hlynntir farið úr 20% niður í 15% á tímabilinu.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Outcome framkvæmdi meðal stjórnenda íslenskra iðnfyrirtækja innan Samtaka iðnaðarins í febrúar og mars í ár og síðustu tvö ár. Svarhlutfall er álíka á milli ára.
Samtök iðnaðarins hafa ekki tekið afstöðu til aðildar Íslands að Evrópusambandinu.




