Beint í efni

Mikil gróska í Félagi hús­gagna­bólstr­ara

Allir félagsmenn mættu á aðalfund Félags húsgagnabólstrara en fjölgað hefur verulega í félaginu.

Mikil gróska í Félagi húsgagnabólstrara

Aðalfundur Félags húsgagnabólstrara fór fram fimmtudaginn 15. maí í Húsi atvinnulífsins. Fundarsókn var einstök en allir félagsmenn mættu og tóku virkan þátt í umræðum og ákvarðanatöku.

Undanfarna mánuði hefur fjölgað verulega í félaginu sem speglar þá miklu grósku sem ríkir í greininni og þann vaxandi fjölda faglærðra húsgagnabólstrara sem hefur bæst í hópinn á síðustu árum. Á fundinum kom fram að það væri ánægjulegt að þessi uppsveifla skuli eiga sér stað nú þegar félagið stefnir á að fagna 100 ára afmæli sínu árið 2028.

Stjórn félagsins var endurkjörin á aðalfundinum en í stjórn sitja Berglind Hafsteinsdóttir, formaður, Ásdís Birgisdóttir, ritari, og Heiða Harðardóttir, gjaldkeri.