Beint í efni

Mikill áhugi á rafrænum vinnu­staða­skír­tein­um

Meistaradeild SI hélt morgunfund þar sem rafræn vinnustaðaskírteini voru kynnt.

Mikill áhugi á rafrænum vinnustaðaskírteinum

Meistaradeild SI hélt sérstakan morgunfund þann 23. október í Húsi atvinnulífsins þar sem kerfið ,,Hver ertu“, þ.e. rafræn vinnustaðaskírteini, var kynnt. Mikill áhugi var á kynningunni og margar góðar spurningar bárust. Kynningin fór einnig fram í streymi.

Að frumkvæði MSI og í nánu samstarfi við Samtök iðnaðarins, Samtök verslunar og þjónustu, Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök atvinnulífsins var kerfi fyrir rafræn vinnustaðaskírteini unnið. Hugmyndin spratt fram á fundi meistaradeildar SI snemma á árinu og var unnið vel og vandlega að útfærslunni í sumar í nánu samráði við hagaðila. Nú í haust kom lokaafurðin sem aðgengileg er á hverertu.is. Skírteinin lenda í síma veskinu líkt og ökuskírteini, og geta leyst hefðbundin plast- og pappírsskírteini af hólmi. Umhverfisvæn lausn og ótakmarkað magn skírteina.

Aðildarfyrirtækjum samtakanna sem stóðu að gerð rafrænu vinnustaða skírteinanna býðst kerfið á sérstökum kjörum.

Kynningin var tekin upp í streymi og hægt er að nálgast hana hér:

https://vimeo.com/1129868085?fl=pl&fe=sh