Rætt var um samkeppnina um erlenda fjárfestingu og mikilvægi slíkra fjárfestinga fyrir Ísland á fundi Samtaka iðnaðarins sem haldinn var í gær í Fantasíusal Kjarvals. Á fundinum var leitast við að svara því hvort íslenskt regluverk og skattframkvæmd hér á landi hindri eða liðki fyrir erlendri fjárfestingu.
Frummælendur á fundinum voru Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins, Árni Sigurjónsson, framkvæmdastjóri JBT Marel á Íslandi og formaður SI, Garðar Gíslason, lögmaður, og Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi iðnaðarráðherra og ráðgjafi hjá Athygli. Þegar framsögum var lokið var efnt til umræðna sem Sigurður stýrði með þátttöku Halldórs Halldórssonar, forstjóra Íslenska kalkþörungafélagsins, Haraldar Birgissonar, lögmanns Deloitte Legal, og Sveinbjörns Finnssonar, aðstoðarmanns ríkisstjórnar. Ólöf Skaftadóttir var fundarstjóri.
Á Facebook SI er hægt að nálgast fleiri myndir frá fundinum.
Myndir/BIG
Viðskiptablaðið, 29. október 2025.
Morgunblaðið / mbl.is, 30. október 2025.
Dagmál, 30. október 2025.




















