Jarðvinna er mikilvægur verkþáttur í byggingaframkvæmdum og mannvirkjagerð af öllu tagi, enda rís engin bygging nema grunnur hennar sé lagður fyrst. Unnið hefur verið að skipulagningu nýrrar námsleiðar í jarðvinnu í samstarfi við Samtök iðnaðarins, Félag vinnuvélaeigenda og Tækniskólann. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Nám í jarðvirkjun mun hefjast hjá Tækniskólanum næsta haust og verður það ætlað bæði nýnemum á framhaldsskólastigi sem og þeim sem þegar starfa í greininni. Námið mun undir búa einstaklinga undir fjölbreytt störf sem felast í jarðvegsvinnu, s.s. efnisflutningar, frágangsvinna og grunnvinna við byggingarlóðir. Skortur hefur verið á nýliðun starfsfólks í því fagi hérlendis og með auknum kröfum um öryggi og gæði, styttri framkvæmdatíma, minna rask, þéttingu byggðar og tækniþróun eykst þörfin sífellt fyrir vel menntað starfsfólk á því sviði.
Á vef Stjórnarráðsins er vitnað til orða Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, sem segir: „Ég fagna því að nemendur geti brátt sótt sér aukna þekkingu á þessu mikilvæga starfssviði. Við viljum skapa tækifæri fyrir fólk á öllum aldri til þess að efla færni sína og sérhæfingu, og mæta þörfum samfélagsins hverju sinni.“
Nám í jarðvirkjun hefst í Tækniskólanum í haust
Nám í jarðvirkjun hefst í Tækniskólanum í haust.

Tengt efni
Hækkun skattbyrði á byggingariðnað ekki rétt meðal í niðursveiflu

Ríkisstjórnin hækkar skatta á byggingariðnað þegar er kólnun í sölu nýrra íbúða

Tækni- og hugverkaiðnaður hefur gert íslenskt hagkerfi stöðugra
Í nýrri greiningu SI kemur fram að með tilkomu tækni- og hugverkaiðnaðar hafi sveiflur í útflutningi þjóðarbúsins orðið 12–16% minni en þær hefðu ella orðið. Greinin sem hefur áttfaldast frá 2008 er ein af fjórum stoðum útflutnings á Íslandi og skilar 369 milljörðum króna í útflutningstekjur.
