Beint í efni

Norrænir arkitektar funda í Kaup­manna­höfn

Fulltrúar Samtaka arkitektastofa sátu árlegan fund systursamtaka á Norðurlöndunum.

Norrænir arkitektar funda í Kaupmannahöfn

Fulltrúar Samtaka arkitektastofa, SAMARK, hittu fulltrúa systursamtaka félagsins á Norðurlöndunum dagana 2.-4. júní í Kaupmannahöfn. Um árlegan viðburð er að ræða þar sem komið er saman til að ræða þróun, áskoranir og tækifæri greinarinnar í hverju landi. Fundurinn veitti mikilvæga innsýn í sameiginleg viðfangsefni sem og ólíkar áskoranir á milli landa. Farið var yfir efnahagslega stöðu greinarinnar í hverju landi auk þess sem haldin var vinnustofa um ný viðskiptalíkön fyrir arkitektastofur, tækifæri og áskoranir. Sonja Stockmarr, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Vilhelm Lauritzen, og Mette Skjold, framkvæmdastjóri og eigandi hjá SLA, héldu erindi um aðlögun að loftslagsbreytingum og líffræðilegan fjölbreytileika – ný viðskiptatækifæri fyrir arkitekta og landslagsarkitekta.

Fulltrúar Samtaka arkitektastofa á fundinum voru Halldór Eiríksson, formaður SAMARK, Ástríður Birna Árnadóttir, stjórnarmaður, Þórhildur Þórhallsdóttir, stjórnarmaður, og Eyrún Arnarsdóttir, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI.