Beint í efni

Ný stjórn Félags hús­gagna­bólstr­ara

Ný stjórn Félags húsgagnabólstrara var kosin á aðalfundi félagsins.

Ný stjórn Félags húsgagnabólstrara

Aðalfundur Félags húsgagnabólstrara var haldinn í Húsi atvinnulífsins. Á fundinum var ný stjórn félagsins kosin. Berglind Hafsteinsdóttir sem var gjaldkeri félagsins var kosin formaður félagsins en Heiða Harðardóttir, fráfarandi formaður, tekur við sem gjaldkeri. Auk Berglindar og Heiðu þá var Ásdís Birgisdóttir kosinn ritari félgasins. Félag húgsgagnabólstrara á sér langa sögu en félagið var stofnað árið 1928.

Á myndinni hér fyrir ofan er ný stjórn, talið frá vinstri, Heiða Harðardóttir, gjaldkeri, Berglind Hafsteinsdóttir, formaður, og Ásdís Birgisdóttir, ritari.

Bolstrarar-oktober-2024
Húsgagnabólstrararnir sem sóttu aðalfund félagsins.
Ný stjórn Félags húsgagnabólstrara - Samtök Iðnaðarins