Ný stjórn Rafverktakafélags Suðurnesja, RS, var kosin á aðalfundi félagsins sem fór fram á Hótel Keflavík 6. nóvember. Í nýrri stjórn eru Hjörleifur Stefánsson, formaður, Guðmundur Ingólfsson, ritari, Björn Kristinsson, gjaldkeri, og Ólafur Róbertsson, varamaður.
Á fundinum flutti formaður félagsins skýrslu stjórnar þar sem fram kom að félagsstarfið hafi að mestu farið fram í gegnum þátttöku í Sart, en formaður RS situr í stjórn og framkvæmdastjórn samtakanna og ritari er varamaður í stjórn. RS á einnig í góðu samstarfi við Samtök iðnaðarins, meðal annars um stefnumótun og vöktun á atvinnuþróun. Á fundinum kom fram að atvinnuástand rafverktaka á Suðurnesjum væri gott þrátt fyrir vissar blikur og áframhaldandi skort á faglærðu starfsfólki. Á liðnu ári útskrifuðust 18 einstaklingar með sveinspróf í rafvirkjun, þar af einn í rafveituvirkjun.
Ný verkefni og sameiginlegir viðburðir
Fundinum lauk með kvöldverði á vegum Reykjafells, sem hlaut sérstakar þakkir frá formanni fyrir stuðning við félagið og góða þjónustu við Suðurnesjamenn.
Nánar á vef Samtaka rafverktaka.




