Beint í efni

Opnað fyrir til­nefn­ingar til Mennta­verð­launa at­vinnu­lífs­ins

Verðlaunin verða afhent 11. febrúar og hægt er að skila tilnefningum fram til 28. janúar.

Elko og Bara tala fá menntaviðurkenningar

Menntaverðlaun atvinnulífsins verða afhent á Hilton Nordica þriðjudaginn 11. febrúar á næsta ári. Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála. Fyrirtækjum er velkomið að tilnefna sig sjálf. Tilnefningar þurfa að berast eigi síðar en þriðjudaginn 28. janúar. Athugið að einungis má tilnefna skráð aðildarfélög SA.

Verðlaun eru sem fyrr veitt í tveimur flokkum. Menntafyrirtæki ársins er valið og menntasproti ársins útnefndur, en fyrirtæki sem tilnefnd eru verða að uppfylla ákveðin viðmið.

Hér er hægt að senda inn tilnefningar.

Myndin er frá afhendingu verðlaunanna á þessu ári þegar Bara tala hlaut Menntasprotann 2024.

Opnað fyrir tilnefningar til Menntaverðlauna atvinnulífsins - Samtök Iðnaðarins