Beint í efni

Pípu­lagn­inga­meist­arar innan SI funda með sér­fræð­ing­um HMS

Fundur pípulagningameistara innan SI með HMS fór fram í Húsi atvinnulífsins.

Pípulagningameistarar innan SI funda með sérfræðingum HMS

Pípulagningameistarar innan Samtaka iðnaðarins sátu fund með Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS, á dögunum í Húsi atvinnulífsins.

Á fundinum tók Þórunn Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri sviðs mannvirkja og sjálfbærni hjá HMS, fyrir rafmagnseftirlit stofnunarinnar og sköpuðust fjörugar umræður í kjölfar og á meðan á erindinu stóð. Smári Freysson, sérfræðingur hjá HMS, fór yfir hugmyndir og stefnur að breyttu byggingareftirliti. Fundarmenn komu fjölmörgum gagnlegum punktum á framfæri og vörpuðu ljósi á skoðanir sinnar iðngreinar.