Vel var mætt á kynningarfund Samtaka sprotafyrirtæja, SSP, í Húsi atvinnulífsins sem haldinn var fyrir skömmu þar sem Andri Heiðar Kristinsson, meðeigandi og fjárfestingarstjóri hjá Frumtaki Ventures, talaði um fjármögnun sprotafyrirtækja og Bryndís Alexandersdóttur, viðskiptastjóri hjá Íslandsstofu, kynnti stuðning Íslandsstofu við íslenska sprotaumhverfið og SLUSH í Helsinki. Fundarstjóri var Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI.
Rætt um fjárfestingar í sprotafyrirtækjum á fundi SSP
Samtök sprotafyrirtækja stóðu fyrir fundi um fjárfestingar með fulltrúum Íslandsstofu og Frumtaki Ventures.


Andri Heiðar Kristinsson, meðeigandi og fjárfestingarstjóri hjá Frumtaki Ventures. 
Bryndís Alexandersdóttur, viðskiptastjóri hjá Íslandsstofu.


