Beint í efni

Samtök rafverktaka gefa mæla til Tækni­skólans

Í tilefni 75 ára afmælis Sart hafa samtökin gefið tíu Fluke mæla sem notaðir verða í kennslu.

Samtök rafverktaka gefa mæla til Tækniskólans

Í tilefni þess að Samtök rafverktaka, Sart, eiga 75 ára afmæli í ár gáfu samtökin Raftækniskólanum veglegar gjafir sem samanstanda af tíu Fluke mælum sem munu nýtast við kennslu í Tækniskólanum. Einnig gáfu samtökin sérstaka úttektarmæla fyrir bílaúttektir en mælarnir eru ætlaðir til að kenna úttektir á bílahleðslustöðvum frá Gossen og munu koma að góðum notum í nýjum verkefnum í rafvirkjun.

Nánar á vef Tækniskólans.


Samtök rafverktaka gefa mæla til Tækniskólans - Samtök Iðnaðarins