Samtök iðnaðarins hafa gefið út Spurt og svarað um húsnæðismál og byggingariðnað með það að markmiði að draga úr upplýsingaóreiðu um húsnæðismarkaðinn. Útgáfunni er ætlað að varpa ljósi á staðreyndir þannig að hægt sé að leita lausna í stað þess að tíma sé varið í að takast á um hver vandinn er.
Í útgáfunni er eftirtöldum þrettán spurningum svarað:
- Er óvenju mikill hagnaður fyrirtækja í byggingariðnaði?
- Eru allir að byggja sem geta haldið á hamri?
- Er þensla í byggingariðnaði að halda verðbólgu hárri?
- Nýjar íbúðir seljast hægt, er þá ekki nóg byggt?
- Eru lánveitingar til íbúðabygginga að aukast?
- Var árangursríkt að lækka endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna íbúðauppbyggingar?
- Kemur lóðaskortur í veg fyrir aukna húsnæðisuppbyggingu?
- Er til nóg af lóðum innan vaxtarmarka höfuðborgarsvæðisins?
- Hvað er byggingarhæf lóð?
- Er fjöldi byggingarhæfra lóða góður mælikvarði fyrir uppbyggingu í náinni framtíð?
- Hvers vegna er ekki verið að byggja á byggingarhæfum lóðum sem eru vissulega tilbúnar?
- Er hægt að stytta byggingartíma með einingum?
- Er ódýrara að byggja á þéttingarreitum?
Hér er hægt að nálgast Spurt og svarað um húsnæðismál og byggingariðnað.




