Beint í efni

Staðan í efna­hags­líf­inu til umræðu í Þjóðmálum

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, er meðal viðmælenda í nýjasta þætti Þjóðmála.

Staðan í efnahagslífinu til umræðu í Þjóðmálum

Í nýjasta þætti Þjóðmála fara þeir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Hörður Ægisson, ritstjóri Innherja, og Gísli Freyr Valdórsson, ritstjóri Þjóðmála, yfir stöðuna í efnahagslífinu, nýbirtar verðbólgu- og atvinnuleysistölur og hvaða afleiðingar þær kunna að hafa á hagkerfið. Þeir ræða einnig um samrunaviðræður Íslandsbanka og Skaga sem var slitið um síðustu helgi og möguleg næstu skref í þeim geira. Auk þess fara þeir yfir búhnykkinn sem felst í skattgreiðslum Kerecis, hvort að ummæli stjórnmálamanna um samkeppnishæfni og einföldun regluverks hafi einhverja raunverulega þýðingu, óvænta sameiningu lífeyrissjóða og margt fleira.

Hér er hægt að nálgast þáttinn á Spotify.

Hér er hægt að nálgast þáttinn á Youtube.

https://www.youtube.com/watch?v=G3BTBjsGwkA

Staðan í efnahagslífinu til umræðu í Þjóðmálum - Samtök Iðnaðarins