Beint í efni

Stjórnendur finnskra bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja heimsækja SI

Fulltrúar SI tóku á móti stjórnendum finnskra byggingarfyrirtækja fyrir skömmu.

Stjórnendur finnskra byggingarfyrirtækja heimsækja SI

Samtök iðnaðarins fengu nýverið góða gesti þegar hópur stjórnenda finnskra byggingarfyrirtækja kom til landsins. Byggingarfyrirtækin eru einkarekin, frumkvöðlastýrð fyrirtæki sem starfa aðallega á sviði íbúðauppbygginga, atvinnuhúsnæðis og endurbóta. Um er að ræða lítil og meðalstór svæðisbundin verktakafyrirtæki með sterkar staðbundnar rætur.

Í heimsókninni fjallaði Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, meðal annars ítarlega um efnahagsstöðuna í byggingariðnaðinum á Íslandi og þær áskoranir sem uppi eru um þessar mundir. Þar var meðal annars rætt um þróun húsnæðismarkaðarins, stöðu framkvæmda og horfur í greininni. Aðrir fulltrúar SI sem tóku á móti hópnum voru Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, og Íris Gunnarsdóttir, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI.

Heimsóknin var góður vettvangur til að efla tengsl, miðla þekkingu og ræða sameiginlegar áskoranir og tækifæri í byggingariðnaði á Norðurlöndum.


Stjórnendur finnskra byggingarfyrirtækja heimsækja SI - Samtök Iðnaðarins