Beint í efni

Þverfaglegt samtal um hringrás í bygg­ing­ar­iðn­aði

Opinn fundur um innleiðingu hringrásarhagkerfisins í byggingariðnaði verður í Grósku 19. janúar kl. 14.30-16.00.

Þverfaglegt samtal um hringrás í byggingariðnaði

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs, Arkitektafélag Íslands og Grænni byggð standa fyrir fundi þar sem fram fer þverfaglegt samtal um innleiðingu hringrásarhagkerfisins í byggingariðnaði í Grósku fimmtudaginn 19. janúar kl. 14.30-16.00. Fundurinn er öllum opið.

Samtalið hefst á ávarpi frá Guðrúnu Ingvarsdóttur, forstjóra Framkvæmdasýslunnar og svo koma innlegg frá tveimur erlendum sérfræðingum, þeim Helle Redder Momsen, skrifstofustjóra Nordic Sustainable Construction og Alexander van Leersum, forstöðumanni Build to Impact.

Í kjölfarið verða panelumræður frá fjölbreyttum hópi hagaðila.

Nánari upplýsingar um fundinn er á Facebook.