Beint í efni

Til­nefn­ingar fyrir Hönn­un­ar­verð­laun Íslands

Hönnunarverðlaun Íslands verða afhent með rafrænum hætti 29. janúar kl. 11.00.

Tilnefningar fyrir Hönnunarverðlaun Íslands

Hönnunarverðlaun Íslands árið 2020 verða afhent með rafrænum hætti föstudaginn 29. janúar kl. 11.00. Á afhendingunni verða veitt Hönnunarverðlaun Íslands, Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands og viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun ársins 2020. Að verðlaununum standa Miðstöð hönnunar og arkitektúrs í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Landsvirkjun, Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins.

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs hefur greint frá tilnefningum fyrir Hönnunarverðlaun Íslands:

Drangar-EGallardo_EGranda_DrangarGH-102
Drangar eftir Studio Granda - Drangar er nýtt gistiheimili byggt á gömlum grunni, staðsett á Snæfellsnesi. Hannað af Studio Granda.

Studio Granda er arkitektastofa, stofnuð af þeim Margréti Harðardóttur & Steve Christer árið 1987.

Peysa með öllu eftir Ýrúrarí - Í verkefninu Peysa með öllu vinnur textílhönnuðurinn Ýr Jóhannsdóttir, eða Ýrúrarí, með óseljanlegar peysur úr fatasöfnun Rauða krossins á Íslandi. Textílhönnuðurinn Ýr Jóhannsdóttir útskrifaðist með BA gráðu í textíl hönnun frá Glasgow School of art árið 2018 en hefur unnið með peysuformið og prjón síðan 2012.

Flothetta

Flotmeðferð eftir Flothettu - Flothetta er íslensk hönnun, gerð til að upplifa slökun og vellíðan í vatni. Flothetta skapar fullkomið ástand fyrir slökun og endurnæringu í mýkt vatnsins. Hannað af Unni Valdísi Kristjánsdóttur, hönnuði, jóga- og vatnsmeðferðaraðila.



Í dómnefnd eru Sigríðir Sigurjónsdóttir, formaður dómnefndar, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands, Sigrún Birgisdóttir, arkitekt og prófessor við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands, Hörður Lárusson, grafískur hönnuður og einn af eigendum hönnunarstofunnar Kolofon, Sigrún Halla Unnarsdóttir, fatahönnuður, stofnandi og meðlimur í hönnunarteyminu iiif, Paul Bennett, CCO hjá IDEO, og Margrét Kristín Sigurðardóttir, almannatengsla- og samskiptastjóri SI.

Tilnefningar fyrir Hönnunarverðlaun Íslands - Samtök Iðnaðarins