Umhverfisdagur atvinnulífsins verður haldinn næstkomandi miðvikudag 9. október í Norðurljósum í Hörpu kl. 8.30-12.00. Um árlegan viðburð er að ræða en að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök verslunar og þjónustu. Fundarstjóri er Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku. Dagskrá Setning Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins Umhverfismál og auðlindanýting á Norðurslóðum Heiðar Guðjónsson, formaður Efnahagsráðs Norðurskautsins
Loftslagsbreytingar, lífríki hafsins og auðlindir Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi
Loftslagsbreytingar og fjárfestingar Brynjólfur Stefánsson, sjóðstjóri hjá Íslandssjóðum Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2019 Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhendir verðlaunin Kaffihlé kl. 10-10.30
Samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður samstarfsvettvangsins. Jákvæðar fyrirmyndir Októ Einarsson, stjórnarformaður Ölgerðarinnar, Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, Þorsteinn Jóhannesson, framkvæmdastjóri Farfugla Úrgangsmál, samkeppni og hringrásarhagkerfið Bryndís Skúladóttir, verkfræðingur hjá VSÓ Orkuskipti í flutninga- og hópferðabílum Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar Nýorku Aðlögun að loftslagsbreytingum Gestur Pétursson, framkvæmdastjóri Veitna ohf.
12.00 Súpa, spjall og netagerð Á vef SA er hægt að skrá sig.
Umhverfisdagur atvinnulífsins á miðvikudaginn
Umhverfisdagur atvinnulífsins verður haldinn næstkomandi miðvikudag 9. október í Norðurljósum í Hörpu.



