Beint í efni

Vel sóttur fundur um útboðsmál í tækni- og hug­verka­iðn­aði

SI stóðu fyrir fræðslufundi í Húsi atvinnulífsins um útboðsmál fyrir félagsmenn í tækni- og hugverkaiðnaði.

Vel sóttur fundur um útboðsmál í tækni- og hugverkaiðnaði

Samtök iðnaðarins stóðu fyrir fræðslufundi um útboðsmál fyrir félagsmenn í tækni- og hugverkaiðnaði þar sem áhersla var lögð á stafrænar lausnir. Fundurinn fór fram í Húsi atvinnulífsins og var vel sóttur.

Á fundinum fór Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, yfir samspil útboðsréttar og samkeppnisréttar. Fór hún sérstaklega yfir hlutverk og verklag SI. Þá fór Dagmar Sigurðardóttir, lögmaður og einn eigenda Lagastoðar og sérfræðingur í opinberum innkaupum, yfir helstu álitaefni við innkaup á hugbúnaði og hvað ber að hafa í huga við þátttöku í útboðsferli.

Vel sóttur fundur um útboðsmál í tækni- og hugverkaiðnaði - Samtök Iðnaðarins