Beint í efni

Vel sóttur jólafundur Félags blikk­smiðju­eig­enda

Jólafundur FBE fór fram í Húsi atvinnulífsins fyrir skömmu.

Vel sóttur jólafundur Félags blikksmiðjueigenda

Félag blikksmiðjueigenda, FBE, hélt á dögunum skemmtilegan jólafund í Húsi atvinnulífsins. Fundurinn var mjög vel sóttur. Formaðurinn Stefán Lúðvíksson setti fundinn og hélt tölu um helstu verkefni stjórnar þetta haustið en þar hafa menntamál borið helst á góma.

Í máli formannsins kom fram að mikill skortur sé á blikksmiðum og að sú eftirspurn muni halda áfram. Eftir erindi formannsins gæddu félagsmenn sér á villibráð og drykkjum. Ási Guðna skemmtikraftur fór svo með gamanmál. Góður rómur var gerður að fundinum meðal félagsmanna FBE sem sögðu þetta vera vel heppnað kvöld hjá félaginu.

Vel sóttur jólafundur Félags blikksmiðjueigenda - Samtök Iðnaðarins