Beint í efni

Vel sóttur jólafundur Mál­ara­meist­ara­fé­lags­ins

Jólafundur Málarameistarafélagsins fór fram í Húsi atvinnulífsins.

Vel sóttur jólafundur Málarameistarafélagsins

Málarameistarafélagið hélt árlegan jólafund félagsins miðvikudaginn 18. desember í samstarfi við Flugger. Fundurinn sem haldinn var í Húsi atvinnulífsins var mjög vel sóttur af á fjórða tug félagsmanna. Gestur fundarins var Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra sem sagði meðal annars frá nýútgefinni bók sinni.