Í Fréttablaðinu er sagt frá því að Samtök iðnaðarins gagnrýni nýjan urðunarskatt en stefnt er að því í fjárlagafrumvarpinu að ríkið innheimti um þrjá milljarða með nýjum urðunarskatti á fyrirtæki. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, gagnrýnir þessi áform: „Hætt er við því að innleiðing urðunarskatts endi sem hrein tekjuöflun fyrir ríkissjóð á meðan ekki er brugðist við þeim vanda sem uppi er hvað varðar aðstöðu- og úrræðaleysi við meðhöndlun slíks úrgangs,“ segir Sigurður. „Fyrirtæki og heimili landsins vilja standa sig vel í úrgangsmálum en ekki eru til staðar nauðsynleg úrræði svo hægt sé að farga úrgangi með fullnægjandi hætti hér á landi. Ekki verður séð að urðunarskatturinn leysi þessa stöðu.“ Fréttablaðið / Vísir, 13. september 2019
SI gagnrýna nýjan urðunarskatt
SI gagnrýna nýjan urðunarskatt sem kemur fram í fjárlagafrumvarpinu.

Tengt efni
Atvinnuleysi í byggingariðnaði langt umfram það sem sést í hefðbundinni árstíðasveiflu
Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Morgunblaðinu um aukið atvinnuleysi í byggingariðnaði.

Heimsókn í ný húsakynni Blikksmiðsins
Fulltrúi SI heimsótti ný húsakynni Blikksmiðsins að Bæjarflöt 2.

Spretthópur um tækifæri og áskoranir í utanríkisviðskiptum
Gert er ráð fyrir að spretthópur um tækifæri og áskoranir í utanríkisviðskiptum skili af sér aðgerðaáætlun með markmiðum snemma árs 2027.
