Samtök fyrirtækja í landbúnaði (SAFL) leggjast alfarið gegn áformum fjármála- og efnahagsráðuneytisins um að breyta tollflokkun svokallaðs pizzaosts. Með breytingunni væru stjórnvöld að ganga gegn margítrekuðum niðurstöðum dómstóla og fyrri yfirlýsingum stjórnvalda um meðferð málsins líkt og kemur fram í umsögn samtakanna um málið. SAFL telja breytinguna jafnframt opna nýja tollaglufu sem geti grafið undan innlendri framleiðslu og tollvernd fleiri landbúnaðarvara. Samtökin hvetja fjármála- og efnahagsráðuneytið til að falla frá breytingunni og að fyrri yfirlýsingar stjórnvalda og niðurstöður íslenskra dómstóla verði virtar.
Deila um tollflokkun pizzaosts á sér langa sögu. Íslenskir dómstólar hafa ítrekað komist að þeirri niðurstöðu að viðbætt jurtaolía breyti því ekki að vara teljist ostur samkvæmt gildandi tollalögum.
Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu árið 2021 og Landsréttur staðfesti hana árið 2022. Hæstiréttur synjaði sama ár um áfrýjunarleyfi og Endurupptökudómur hafnaði endurupptöku málsins árið 2023. Þegar aftur var látið reyna á málið hafnaði Héraðsdómur kröfum innflytjanda árið 2025. Landsréttur vísaði málinu frá í mars 2026 og Hæstiréttur í apríl síðastliðnum.
„Þetta mál hefur farið ítrekað fyrir íslenska dómstóla og niðurstaðan stendur óhögguð: Ostur er og verður ostur þótt jurtaolíu sé bætt við hann. Nú virðast stjórnvöld ætla að snúa við eigin málflutningi og breyta lögunum til að ná fram annarri niðurstöðu í þágu fárra innflutningsaðila,“ segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri SAFL.
Málið á sér pólitíska forsögu. Í febrúar 2025 mótmæltu SAFL og fimm önnur samtök í landbúnaði sambærilegum áformum og bentu á að hundruð milljóna króna gætu færst árlega frá íslenskum bændum til erlendra framleiðenda og fárra innflutningsfyrirtækja.
Í kjölfarið tók atvinnuvegaráðherra fram að málið myndi ekki ganga lengra án samráðs við hagaðila um starfsumhverfi landbúnaðarins. Fjármála- og efnahagsráðuneytið tilkynnti síðan Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) í nóvember 2025 að mikilvægt væri að ljúka viðræðum við Bændasamtök Íslands um nýja búvörusamninga áður en frumvarp um breytingar á tollskrá yrði lagt fyrir Alþingi.
Áður en þær samningaviðræður hafa farið fram boðar fjármála- og efnahagsráðuneytið nú engu að síður breytinguna í frumvarpi um ýmsa skatta og gjöld.
„Stjórnvöld verða að standa við eigin yfirlýsingar. Það er ekki trúverðugt að segja ESA og landbúnaðinum að fyrst verði rætt um málið við endurskoðun búvörusamninga en leggja breytinguna síðan fram einhliða áður en þær viðræður hefjast,“ segir Margrét.
mbl.is, 21. september 2026.
Vísir, 21. september 2026.



